top of page
legalet - header.png

Legalett

Sökkulkerfi og gólfplata, steypt í einni steypu, með eða án gólfhitakerfis. Örugg, fljótlegri og hagkvæmari leið fyrir húsbyggjendur.

Legalett 4C.png

Sökkulkerfi

Belkod er umboðsaðili Legalett á Íslandi.  

Legalett sökkulkerfið er lagt ofan á þjappaðan og sléttan jarðvegspúða. Sökkulveggir koma með áfastri steypuhulu og því fullfrágengnir að utanverðu eftir lagningu. Þegar búið er að raða upp sökkuleiningunum er sökkulplastinu raðað innan í og myndar almennt 30 cm einangrun undir plötu. 

Inntakslagnir og fráveitulagnir sem komu í jarðvegspúðann teknar upp á réttum stöðum, og allar lagnir lagðar í og á plastið skv. forskrift framleiðanda og lagnahönnuða.  Vatnsgólfhitakerfið kemur á sérstakar festiskinnur sem gerir lagningu mjög fljótlega. 

Einnig er hægt að fá loftgólfhitakerfi sem kemur þá með tilbúnum slaufum og er enn fljótara í lagningu en hefðbundið vatnsgólfhitakerfi.

Járnamottur og tilsniðin járn eru lögð og síðan steypt í einni steypu.

Það má áætla að það taki 2-3 vana menn um viku frá því byrjað er á sökkulkerfinu þar til hægt er að steypa m.v. 160 m2 hús (Mjallhvíti).

Gólfhitakerfi

Legalett gólfhitakerfið er byltingarkennd lausn sem notar heitt loft í stað vatns til að dreifa hita um gólfið í lokuðu og hljóðlausu hringrásarkerfi. Þessi einstaka aðferð tryggir jafna hitadreifingu, án hættu á vatnsleka, sem gerir kerfið afar áreiðanlegt og endingargott.  Rörin eru 50 mm og leggjast ofan á sökkulplastið frá sérstökum kössum (varmastöðvar eða lungu) sem eru í gólfinu þar sem vifta og allar stýringar eru til staðar.  Hægt er að fjartengjast kerfinu og breyta ákveðnum gildum og einnig fá margskonar upplýsingar úr kerfinu.

Lofthitakerfið er hagkvæmt í rekstri, notast við hitaveitu þar sem hún er til staðar en einnig hægt að hafa rafmagnselement þar sem það hentar.  Það hentar jafnt í nýbyggingar sem og endurbætur og má nota í öllum tegundum húsa s.s. í einbýlishúsum, fjölbýlishúsum og atvinnuhúsnæði.

​Fyrir þá sem kjósa hefðbundnari lausn er Legalett einnig fáanlegt með hefðbundnu vatnshitalögnum.

Hvort sem um ræðir loft- eða vatnshitun, býður Legalett upp á nútímalegt, öruggt og skilvirkt gólfhitakerfi.

bottom of page