top of page

-Skilalýsing #3
Belkod
Hvað fylgir með?

Belkod býður eingöngu upp á gæða vörur sem valdar eru m.t.t. gæða og endingar en ekki verðs. Í flestum tilfellum eru vörurnar framleiddar eða hannaðar af sænskum framleiðendum.
​

​

Skilalýsing - #3 - Á við Skogsglantan húsið

 

TEIKNINGAR

Allar nauðsynlegar teikningar eru innifaldar, s.s. bygginganefndarteikningar, burðarþolsteikningar, lagna- og raflagnateikningar ásamt uppsetningarteikningum frá framleiðanda.

​

GRUNNUR

Sökkulinn er gerður úr Legalett sökkuleiningum með loftgólfhitakerfi. Sökkullinn er 400mm hár með 10 mm múrhúð að utanverðu. Platan er 100 mm þykk steypa með 300 mm einangrun undir. Járnamotta er lögð í plötuna ásamt sökkuljárnum við úthringinn.  Innifalið eru sökkuleiningar og plötuplast ásamt járni og festingum. Steypa er ekki innifalin.

​

HITAKERFI

Loftgólfhitakerfi fyrir hitaveitu er innifalið og samanstendur það af varmastöðvum, stýribúnaði, tilbúnum slaufum (50mm rör), og hitastillum. Miðað er við staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu m.t.t. hitastigs sem notað er til útreikninga á kerfinu.

​

ÚTVEGGIR - Einingar
Timburklæðning CybernPanel (22x145mm, grunnuð og máluð, litur hvítur NCS-S0502-Y). Liggjandi 28x70mm lektur, vindpappi, 30mm ytri-einangrunarplata, 170mm burðarviki með einangrun, 0,2mm rakasperra, 45mm liggjandi lagnagrind og 2x13mm gifsplötur.

​

INNVEGGIR
Grind er 45x70mm, 2x13mm gips á hvorri hlið.
45mm einangrun í alla veggi.
Vegghæð er 2600mm. Allt efni er afhent ósamansett.

​

ÞAK - og fylgihlutir
Þakpappi, áfellur, 22mm panell, þakkantur og panell þar undir. Þakrennur, niðurföll, allar áfellur og þaktúður. Ath. þakjárn er ekki innifalið.

​

GLUGGAR OG SVALAHURÐ
Gluggar eru Traryd Optimal, timbur/ál með þreföldu gleri. Einangrunargildið U=1,1 í föstum gluggum og 1,2 á opnanlegum gluggum. Gluggar í baðherbergjum eru með frostuðu gleri. Franskir gluggar eru ekki innifaldir í verði.

​

ÚTIHURÐIR
Aðalinngangur; 
Lejonet eða Tvillingarna. Hægt að fá með gleri (ólitað), 1000x2200 mm.
Þvottahús inngangur; 
Lejonet eða Tvillingarna. Hægt að fá með gleri (ólitað), 1100x2200 mm.
Hurðarhúnar eru af gerðinni Hoppe 1140 Stockholm og Assa 2002 læsing.

​

INNIHURÐIR
Swedoor style 03, hvít. Hurðarhúnn úr áli af gerð, Ibiza 1171. Karmar með þéttilista.

​

LOFTRÆSING

Í öllum rýmum, nema baðherbergjum er loftræstirist. Í baðherbergjum er útloftunarvifta.

​

ALMENNT
Efni sem ekki er upptalið hér er ekki innifalið. Húsunum sem eru undir Hagstæðustu húsin á heimasíðunni má spegla án viðbótarkostnaðar. Allar aðrar breytingar sem gerðar verða eru á kostnað kaupanda og munu verð uppfærast eftir því. Það efni og tæki sem ekki er fáanlegt lengur er skipt út fyrir sambærilega vöru. Engin rannsóknarvinna, jarðvegsskipti eða frágangur á púða undir plötuna er innifalið.

​

FLUTNINGUR
Verðið miðast við afhendingu úr verksmiðju framleiðanda í Svíþjóð. Kaupandi getur notið hagstæðra kjara Belkod hjá íslenskum flutningsaðila.  Gera þarf ráð fyrir plássi fyrir fleti og gáma og góðu aðgengi fyrir flutningabíla/krana. Tími fyrir fleti og gáma á verkstað er takmarkaður og fer eftir skilmálum flutningafyrirtækja nema annað komi fram í sölusamningi. Römmum undir útveggi og ströppum þarf kaupandi að skila skv. nánari útlistun í sölusamningi.

​

Athugið að upptalningin hér á undan er ekki tæmandi og er til viðmiðunar og upplýsingagjafar.

Miðað er við að húsið komi á mjög sléttan og rétt þjappaðan púða.

Við hönnun þarf að taka tillit til hvort húsið tengist hitaveitukerfi eða ekki.

Húsið þarf að mála eina umferð að utan eftir að það hefur verið reist. Upplýsingar um grunn og málningu sem fyrir er á húsinu er að finna í fylgigögnum.

Festiefni fyrir burðarvirki hússins er innifalið í verðinu skv. magntöku frá framleiðanda. Í einhverjum tilfellum gæti magn einstakra hluta verið of- eða vantalið. Vanti mögulega eitthvað festiefni útvegar kaupandi það.

​

​

Hér fyrir neðan má finna framleiðendur fylgihluta og með því að smella má sjá viðeigandi vörur. Ath. í einhverjum tilfellum er ekki víst að linkurinn vísi á rétta vöru, heldur aðeins framleiðandann og vöruflokk. Á heimasíðu framleiðandans má finna annan búnað sem hægt er að velja í samráði við Belkod.

 

Ath. Það er ekki víst að tengillinn nákvæmlega þá vöru sem við á eða í réttum lit.

Útihurðir frá Nordan

Stærð 110x220 cm, hvítmálaðar og er val um hurð með gleri eða án. Þeim fylgja ASSA skrár ásamt cylinder.

Innihurðir frá Swedoor

Hurðirnar eru hvítar með krómuðum handföngum. Hér er miðað við standard hurðina Style 03.

Gluggar frá Traryd.

Optimal glugginn er úr timbri með hvítri álklæðningu að utan, og þreföldu gleri.

Lýsing

Í rýmum húsanna er innfelld LED-lýsing frá Designlight (nema í bílskúr). Í þakskyggni er einnig innfeld LED-lýsing, miðað við raflagnateikningu frá Belkod. Sé annar hönnuður að þá þarf að taka mið af því sérstaklega.

bottom of page