top of page

-Skilalýsing #2
Belkod
Hvað fylgir með?

Belkod býður eingöngu upp á gæða vörur sem valdar eru m.t.t. gæða og endingar en ekki verðs. Í flestum tilfellum eru vörurnar framleiddar eða hannaðar af sænskum framleiðendum.
​

​

Þetta fylgir með í pakkanum
Skilalýsing - #2

 

TEIKNINGAR

Allar nauðsynlegar teikningar eru innifaldar, s.s. bygginganefndarteikningar, burðarþolsteikningar, lagna- og raflagnateikningar ásamt uppsetningarteikningum frá framleiðanda.

​

GRUNNUR

Sökkulinn er gerður úr Legalett sökkuleiningum með loftgólfhitakerfi. Sökkullinn er 400mm hár með 10 mm múrhúð að utanverðu. Platan er 100-120 mm þykk steypa með 280-300 mm einangrun undir. Járnamotta er lögð í plötuna ásamt sökkuljárnum við úthringinn.  Innifalið eru sökkuleiningar og plötuplast ásamt járni og festingum. Steypa er ekki innifalin.

​

HITAKERFI

Loftgólfhitakerfi fyrir hitaveitu sem samanstendur af varmastöðvum, stýribúnaði, tilbúnum slaufum (50mm rör), og hitastillum. Miðað er við staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu m.t.t. hitastigs sem notað er til útreikninga á kerfinu.

​

ÚTVEGGIR - Einingar
Timburklæðning, L
ockpanel 22x120+22x120mm, grunnuð og máluð, litur hvítur NCS-S0502-Y). Liggjandi 28x70mm lektur, vindpappi, 30mm ytri einangrunar-plata, 170mm burðarviki með einangrun, 0,2mm rakasperra, 45mm liggjandi lagnagrin, OSB og 13mm gifsplötur. Hámarkslengd útveggjaeininga er 6,5m.

​

INNVEGGIR
Grind er 45x70mm, OSB og 13mm gips á hvorri hlið. 45mm einangrun í alla veggi. Veggur á milli bílskúrs og íbúðar er EI60. Allt efni í innveggi er afhent ósamansett.

​

LOFT

Klætt er neðan í kraftsperrur. 0,2mm rakasperra 45mm lagnagrind, og 13mm nótað loftagips.  Lofthæð 2500mm. Innfelldur, niðurdraganlegur stigi af loftinu. Í uppteknum loftum er einangrað á milli sperra, lektað og klætt á sama hátt.

​

ÞAK - og fylgihlutir
Kraftsperrur eru afhentar samsettar í flestum tilfellum. 300mm einangrun með pappa, 3mm vír (300cc).

Þakpappi, áfellur, 22mm panell, lektur undir þakjárn, þakkantur og panell þar undir. Þakrennur, niðurföll, allar áfellur og þaktúður. Ath. þakjárn er ekki innifalið.

​

GLUGGAR OG SVALAHURÐ
Gluggar eru Traryd Optimal, timbur/ál með þreföldu gleri. Einangrunargildið U=1,1 í föstum gluggum og 1,2 á opnanlegum gluggum. Gluggar í baðherbergjum eru með frostuðu gleri. Vatnsbretti eru hvítar blikkáfellur, með þöggunarteipi að neðanverðu.
Franskir gluggar eru ekki innifaldir í verði.

​

ÚTIHURÐIR
Aðalinngangur; 
Lejonet eða Tvillingarna. Hægt að fá með gleri (ólitað), 1000x2200 mm.
Þvottahús inngangur; 
Lejonet eða Tvillingarna. Hægt að fá með gleri (ólitað), 1100x2200 mm.
Hurðarhúnar eru af gerðinni Hoppe 1140 Stockholm og Assa 2002 læsing.

​

INNIHURÐIR
Swedoor style 03, hvít. Hurðarhúnn úr áli af gerð, Ibiza 1171. Karmar með þéttilista. 

​

GÓLF
Tarkett Pure Ek Nature 3-stafa parket í öll rými nema baðherbergi, þvottahús og anddyri en flísar fylgja með í þau rými.

​

LISTAR
12x56mm sléttir grunnmálaðir gólflistar og gerefti. Kverklistar eru 15x56 mm grunnmálaðir. Gluggahús og gluggakista (200mm djúp) eru hvítmáluð úr MDF plötu.

​

ELDHÚS OG ÞVOTTAHÚS

Eldhús

Hvít eldhúsinnrétting (AV1 EVE) með vaski (FRANKE VELA VLX610-50). Höldur (Catina)
Þvottahús

Hvít þvottahúsinnrétting (AP1 DORIS) með vaski (Franke WS Tiira). Höldur (Catina)

​

BAÐHERBERGI
Stóra baðherbergið
Elega Rantasipi 900 hvítur skápur með vaski. Forsa sturta 90x90, ál og matt gler. Vegghengt klósett með utanáliggjandi klósettkassa.  Hægt er að setja baðkar. 
Litla baðherbergið
Elega Rantasipi 600 hvítur skápur með vaski. Forsa sturta 90x90, ál og matt/gler. Vegghengt klósett með utanáliggjandi klósettkassa.

​

FATASKÁPAR
Fataskápar frá Elega, fjöldi og stærðir skv. teikningu.

​

HEIMILISTÆKI
Öll heimilistæki eru frá Cylinda. Spanhelluborð IHI6160, ofn IBU92, örbylgjuofn IM91M, vifta Apollo Trend 60RF, ísskápur K2385H, frystir K2385NH, uppþvottavél DM3120, þvottavél FT5474 og þurrkari TVP5471.

​

LAMPAR OG STÝRIBÚNAÐUR
Innfelldir LED lampar frá sænska framleiðandanum Designlight eru í öllum rýmum. Plejd stýribúnaður fylgir með sem stýrir lýsingu inni og úti og er jafnframt hægt að stýra með appi á einfaldan hátt.

 

Reykskynjarar og dyrabjalla:
Þráðlausir samvinnandi reykskynjarar eru í herbergjum, stofu og eldhúsi.  Þráðlaus dyrabjalla Honeywell DC311N er einnig innifalin.

​

BLÖNDUNARTÆKI
Eldhúskrani: Gustavsberg Nautic með lokun fyrir uppþvottavél. Þvottahúskrani: Gustavsberg Nautic með tengi fyrir kalt vatn fyrir þvottavélina. Baðherbergiskrani: Gustavsberg Nautic. Blöndunartæki í sturtuna: Gustavsberg Round sturtusett. Útikrani.

​

LOFTRÆSING
Í öllum rýmum, nema baðherbergjum er loftræsirist. Í baðherbergjum er útloftunarvifta.

​

​

ALMENNT
Efni sem ekki er upptalið hér er ekki innifalið. Húsunum sem eru undir Hagstæðustu húsin á heimasíðunni má spegla án viðbótarkostnaðar. Allar aðrar breytingar sem gerðar verða eru á kostnað kaupanda og munu verð uppfærast eftir því. Það efni og tæki sem ekki er fáanlegt lengur er skipt út fyrir sambærilega vöru. Engin rannsóknarvinna, jarðvegsskipti eða frágangur á púða undir plötuna er innifalið.

​

FLUTNINGUR
Verðið miðast við afhendingu úr verksmiðjum framleiðenda í Svíþjóð. Kaupandi getur notið hagstæðra kjara Belkod hjá íslenskum flutningsaðila, frá verksmiðju á byggingarstað.  Gera þarf ráð fyrir plássi fyrir fleti og gáma og góðu aðgengi fyrir flutningabíla/krana.  Einnig þarf að gera ráð fyrir að tími fyrir fleti og gáma á verkstað er takmarkaður og fer eftir skilmálum flutningafyrirtækja nema annað komi fram í sölusamnini. Römmum undir útveggi og ströppum þarf kaupandi að skila skv. nánari útlistun í sölusamningi.

​

Athugið að upptalningin hér á undan er ekki tæmandi og er til viðmiðunar og upplýsingagjafar.

Miðað er við að húsið komi á mjög sléttan og rétt þjappaðan púða.

Við hönnun þarf að taka tillit til hvort húsið tengist hitaveitukerfi eða ekki.

Lagnaefni fylgir ekki með húsunum og ekki fráveitulagnir.

Raflagnaefni fylgir ekki með húsunum að undanskildum dimmum (stýrikerfi) fyrir lýsingu og koma þeir í dósir á bak við þrýstirofa.

Engin málning fylgir með né sparsl eða borðar og tengt efni.

Engir vinnu- eða tækjaliðir eru í tilboðinu aðrir en vegna hönnunar og teikninga og smíði eininganna.

Húsið þarf að mála eina umferð að utan eftir að það hefur verið reist. Upplýsingar um grunn og málningu sem fyrir er á húsinu er að finna í fylgigögnum.

Festiefni fyrir burðarvirki hússins er innifalið í verðinu skv. magntöku frá framleiðanda. Í einhverjum tilfellum gæti magn einstakra hluta verið of- eða vantalið. Vanti mögulega eitthvað festiefni útvegar kaupandi það.

​

FYRIRVARAR

Verð á heimasíðu geta breyst vegna breytinga á gengi og verðhækkana erlendis.

Við sölusamning er verðið fest við gengi ISK/SEK viðkomandi dags og greiðslur taka svo mið af gengisbreytingum.

Fyrirvari er gerður um villur í texta.

​

​

​

Hér fyrir neðan má finna framleiðendur fylgihluta og með því að smella má sjá viðeigandi vörur. Ath. í einhverjum tilfellum er ekki víst að linkurinn vísi á rétta vöru, heldur aðeins framleiðandann og vöruflokk. Á heimasíðu framleiðandans má finna annan búnað sem hægt er að velja í samráði við Belkod.

 

Ath. Það er ekki víst að tengillinn vísi nákvæmlega á þá vöru sem við á eða í réttum lit.

innréttingar og skápar
Eldhúsinnrétting

Hvítar innréttingar frá Elega, með borðplötu og vaski

Fataskápar

Fataskápar eru frá Elega, hvítir.

Heimilistæki frá Cylinda

Miðað er við hvít tæki í miklum gæðum. Innifalið er spanhelluborð (svart), ofn, örbylgjuofn, uppþvottavél, ísskápur/frystir, vifta, þvottavél og þurrkari.

parket

Parket er 13mm 3ja stafa lökkuð Eik frá Boen.
Einnig er hægt að velja gólfefni frá Tarkett.

Flísar frá Konradssons

Ef flísar fylgja með í verðtilboði að þá er reiknað með smekklegum flísum á gólf í votrýmum og á veggi á baði og á milli skápa í eldhúsi.

Baðinnrétting

Baðinnréttingin heitir Forma

Blöndunartæki

Blöndunartækin eru frá Gustavsberg og af gerðinni Nautic

Lýsing

Í rýmum húsanna er innfelld LED-lýsing frá Designlight (nema í bílskúr). Í þakskyggni er einnig innfeld LED-lýsing, miðað við raflagnateikningu frá Belkod. Sé annar hönnuður að þá þarf að taka mið af því sérstaklega.

Útihurðir frá Nordan

Stærð 110x220 cm, hvítmálaðar og er val um hurð með gleri eða án. Þeim fylgja ASSA skrár ásamt cylinder.

Innihurðir frá Swedoor

Hurðirnar eru hvítar með krómuðum handföngum. Hér er miðað við standard hurðina Style 03.

Gluggar frá Traryd.

Optimal glugginn er úr timbri með hvítri álklæðningu að utan, og þreföldu gleri.

bottom of page