top of page

HEIMILIÐ ÞITT
- Mjallhvít - 154m2

Mjallhvit_Forsida.png
Mjallhvit_Forsida.png
Mjallhvít  E1.154

Mjallhvít er fyrsta svokallaða„standard“ húsið sem Belkod býður.
Mjallhvít er samskonar hús og First Choice 1.0 Classic frá Mjöbäcksvillan en búið
er að gera breytingar til að uppfylla íslenskar reglugerðir að öllu leyti.

Mjallhvít er vel skipulagt og hentar barnafjölskyldum sérstaklega vel en einnig
pörum og einstaklingum. Eldhús og stofa liggja saman í opnu og björtu rými og minni svefnherbergin eru í öðrum endanum með sér snyrtingu, tilvalið fyrir börn og/eða gesti. Stórt hjónaherbergið er með sér snyrtingu og fataherbergi. Þvottahús er inn af eldhúsi með hurð út í garð. Hægt er að fá með öfluga útloftunarvarmadælu sem skilar mikilli orku og stuðlar jafnframt að betri loftskiptum.  Einnig er hægt að fá með vandað loftskiptikerfi með varmaendurvinnsluhjóli.

 

Mjallhvítarhúsið er sennilega eitt umhverfisvænasta húsið á Íslandi í dag!

bottom of page