
Salernis- og fráveitukerfi
frá jets
-
Náttúruvænt
-
Allt að 90% minni vatnsnotkun
-
Enginn úði eftir sturtun
-
lágmarkar hættu á smitsjúkdómum

Jets fráveitukerfið er einstaklega umhverfisvænt og hagkvæmt. Það er hægt að nota fyrir heimilið, bústaðinn, afskekkta ferðamannastaði, hótel og byggingar í öllum stærðum og gerðum.
Einnig er Jets kerfið mikið notað í skipum og fararækjum.
Jets sogklósettkerfi má hæglega setja upp þar sem aðgengi að rafmagni og/eða vatni er ekki til staðar. Þá vinnur kerfið á batteríi og sólarsellu. Kerfið notar mjög lítið vatn í hvert skol, og þarf í raun ekki nema nokkra desilítra. Af þeim sökum þarf heldur ekki stóra safntanka.
Aukning á notkun á Jets kerfum hefur aukist gríðarlega í Noregi og Svíþjóð undanfarið og skipa þar umhverfismál, einfaldleiki og rekstraröryggi stóran sess. Jets kerfið varð svo fyrir valinu m.a. í Mývatnssveit vegna ítarlegra krafna um að fráveitumál þar séu eins og best verður á kosið.

Umhverfisvænt og hagkvæmt
Jets sogsalernis- og fráveitukerfið var meðal annars valið í nýja þjónustumiðstöð á Þingvöllum vegna hagkvæmnis- og umhverfissjónarmiða.

Jets fráveitukerfið

Eldra rotþróar og siturlagnakerfi
Minna jarðrask og gröftur
Þar sem safntankurinn er lokaður þarf ekki að útbúa siturlögn með tilheyrandi kostnaði og umstangi.
