
KROSSLÍMT TIMBUR / CLT
CLT-einingar frá Södra fyrir íslensk byggingarverkefni
Hágæða, hagkvæm og vistvæn lausn - frá hönnun til afhendingar
Eitt helsta sérsvið Belkod er CLT (Cross Laminated Timber) eða krosslímt timbur. Við erum söluaðili fyrir CLT-lausnir frá Södra, einum stærsta og virtasta framleiðanda timburafurða í Evrópu og stærsta skógaeigendafélagi Svíþjóðar með yfir 50.000 félagsmenn. Södra framleiðir byggingarefni úr sjálfbært ræktuðum skógum og er leiðandi afl í þróun loftslagsvænna og endurnýjanlegra byggingarefna.
CLT hefur á síðustu árum orðið eitt mest spennandi byggingarefni heims. Einingarnar eru framleiddar með mikilli nákvæmni í verksmiðju og afhentar tilbúnar til uppsetningar á verkstað. Þetta styttir byggingartíma verulega, dregur úr sóun og tryggir framúrskarandi gæði. CLT hentar jafnt fyrir einbýlishús, fjölbýlishús, skóla, skrifstofubyggingar og iðnaðarhúsnæði. Auk þess bindur timbur kolefni og stuðlar þannig að lægra kolefnisspori bygginga

Við höfum hannað og flutt inn fjöldann allan af fjölbreyttum lausnum með CLT-einingum. Við höfum unnið að verkefnum af ýmsum stærðum og gerðum, allt frá smærri viðbyggingum yfir í stærri fjölbýlishús. Meðal verkefna okkar má nefna einbýlishús, parhús, raðhús og fjölbýlishús, þar sem hver lausn er sérsniðin að þörfum viðskiptavina okkar. CLT-einingar bjóða upp á fjölmarga kosti, svo sem skjótan uppbyggingartíma, mikla styrkleika og umhverfisvæna nálgun. Við leggjum áherslu á gæði, fagmennsku og sjálfbærni í öllum okkar verkefnum, með það að markmiði að skapa endingargóð og falleg heimili sem standast ströngustu byggingarstaðla.


Er CLT málið?
CLT timbureiningar njóta sífellt meiri vinsælda um allan heim og nú býður BELKOD upp á CLT einingar frá Södra í Svíþjóð. Södra framleiða sjálfir timbur í allar sínar einingar og fylgja ströngum reglum um náttúruvernd og gæði. CLT einingarnar frá Södra eru þær umhverfisvænstu á Íslandi.
CLT einingar er hagkvæm, fljótleg og vistvæn leið fyrir minni og stærri byggingar. CLT einingar er traustur byggingamáti sem meðal annars er nýttur til bygginga háhýsa víða um Evrópu.
Krosslímdu timbureiningarnar koma tilsniðnar og tilbúnar til uppsetningar til viðskiptavinar á verkstað. Þegar einingarnar hafa verið reistar eru útveggir einangraðir að utan og klæddir með klæðningu að eigin vali. Inn- og útveggi má klæða með gipsplötum eða öðru efni beint á einingarnar þar sem lagnir eru fræstar í einingarnar.